nr. 1
Skip Navigation Links
HyperLink     Venjulegt letur  Stórt letur


 

Fréttir


Fréttatilkynning vegna LM 2012

3/8/2010
Stækka mynd 1
Ljósm.: HGG
Fréttatilkynning frá hestamannafélögunum Geysi, Léttfeta, Sindra og Stíganda varðandi Landsmót hestamanna 2012:
Fulltrúar ofan talinna hestamannafélaga áttu pantaðan fund með Haraldi Þórarinssyni formanni Landssambands hestamannafélaga (LH), þann 5. mars sl. kl: 15:30.

Þar átti að afhenda honum skjöl undirrituð af stjórnarmönnum 26 hestamannafélaga innan LH þar sem því er mótmælt hvernig staðið er að ákvörðun um að halda Landsmót 2012 í Reykjavík.
Undir miðnætti í fyrrakvöld afboðar Haraldur fundinn á þeim forsendum að hann sé upptekinn og ná ekki að boða stjórnarmenn til fundarins.
Á föstudaginn (5. mars) birtist síðan frétt um að komið hafi verið á fundi milli LH og Fáks þar sem undirritaður var samningur um Landsmót í Reykjavík 2012.

Furðum við okkur á vinnubrögðum formanns LH og teljum þau ólýðræðisleg og ekki unnin af heilindum. Ljóst er að geysileg andstaða ríkir meðal hestamanna um val á Reykjavík sem Landsmótsstað 2012.

Geysir
Léttfeti
Sindri
Stígandi