Fagráð móta stefnu í kynbótum og þróunarstarfi viðkomandi búgreinar, skilgreina ræktunarmarkmið og setja reglur um framkvæmd meginþátta ræktunarstarfsins. Enn fremur móta þau tillögur um stefnu í fræðslumálum og rannsóknum búgreinarinnar og fjalla um önnur mál sem vísað er þangað til umsagnar og afgreiðslu. Í fagráðum skulu sitja menn úr hópi starfandi bænda. Þá skal landsráðunautur sitja í fagráði og jafnframt skulu sitja í fagráðum eða starfa með þeim sérfróðir aðilar. Fagráð skulu hljóta staðfestingu landbúnaðarráðherra að fenginni umsögn Bændasamtaka Íslands.
Samkvæmt Búnaðarlögunum er það í verkahring fagráðs hverrar búgreinar að meta þörf fyrir kynbótadóma og sýningar búfjár í viðkomandi búgrein og gera tillögur til Bændasamtaka Íslands og viðkomandi aðildarfélaga um dómstörf og sýningarhald.
Í fagráði í hrossarækt sitja:
Frá Félagi hrossabænda:
Kristinn Guðnason, formaður, Árbæjarhjáleigu I, 851 Hella. S:487-5258 / 847-1179.
Bjarni Þorkelsson, Þóroddsstöðum, 801 Selfoss. S:486 4462 / 844 5758.
Gísli Gíslason, Þúfum, 566 Hofsós. S: 453 6335 / 897 7335.
Sigrún Ólafsdóttir (tiln. af FT), Hallkelsstaðahlíð, 311 Borgarnes. S: 435 6697 / 862 8422.
Ísleifur Jónasson (tiln. af LH), Kálfholti, 851 Hella. S: 487 5016 / 862 9301.
Fulltrúar Bændasamtaka Íslands:
Guðlaugur V. Antonsson, ritari, Hvanneyri, 311 Borgarnes. S:892-0619/437-1215.
Sigurbjartur Pálsson, Skarði, 851 Hella.
Víkingur Gunnarsson (tiln. af búnaðarskólunum), Hólaskóla, 551 Sauðárkróki. S:453-6300. Bréfs:453-6301.
Fundargerðir fagráðs
English:
Fagráð is the official Horse Breeding Council in Iceland. It sets rules and goals regarding breeding evaluations according to Icelandic Agriculture laws. The chairman of the Horse Breeders Association is also the chairman of the Horse Breeding Council. Above you can see who the members of the council are.