Fundur verður í Rangárhöllinni í kvöld kl 20:00 (25.okt) . Á fundinum, sem er öllum opinn og haldinn af Hrossaræktarsamtökum Suðurlands verður farið yfir þær breytingar sem orðnar eru á félagskerfi Bændasamtaka Íslands og hvaða áhrif þær hafa á Félag hrossabænda. Mikilvægt er að félagsmenn og aðrir hesteigendur kynni sér þær breytingar sem framundan eru.
Frummælendur á fundinum eru Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda og Unnsteinn Snorri Snorrason, starfsmaður Bændasamtaka Íslands.
Streymt verður frá fundinum hér á Facebook síðu FHB