Takk fyrir árið kæra hestafólk

Takk fyrir árið kæra hestafólk. Það er við hæfi kæru félagar að líta um öxl og rifja upp það helsta í lok árs sem og láta sér hlakka til komandi árs. Ég ætla í þessari stuttu grein ekki að fjalla mikið um kórónaveiruna en faraldurinn hefur auðvitað haft áhrif á okkar líf og starf þó svo að hrossaræktarstarfið og hestamennskan hafi haldið sínu striki ótrúlega vel. Við vonum auðvitað að komið sé að endasprettinum og að lífið komist í eðlilegra horf sem allra fyrst. Til komandi sumars horfum við með tilhlökkun enda ætlum við að halda glæsilegt landsmót hestamanna á Hellu og erum vongóð um að aðstæður á Íslandi og í heiminum verði þannig að það gangi allt saman upp. Dagskrá landsmótsins hefur verið kynnt, metnaðarfull og ræður bjartsýnin ein ríkjum á þeim bænum. Á mótið mæta kynbótahrossin til dóms að nýju eins og verðið hefur undanfarin landsmót og síðan keppt bæði í gæðinga og íþróttakeppni sem er nýbreyttni á landsmóti. Þannig að nóg verður um að vera enda saman kominir bestu knapa og gæðingar landsins og sagt er að framkvæmdarstjóri mótsins lofi sól og blíðu alla daganna. Félagsmál hrossabænda hafa verið talsvert fyrirferðamikil í starfi félagsins á þessu ári en það var ljóst eftir að Bændasamtök Íslands innleiddu nýtt félagsform s.l. sumar, svokallaða beina aðild, að öll búgreinafélögin þyrftu að taka ákvörðun hvernig þeirra félagsformi yrði háttað til framtíðar. Á aðalfundi Félags hrossabænda 13. nóvember og á framhaldsfundi aðalfundar 11. desember var tekin ákvörðun um að félagið verði að deild innan Bænasamtakanna frá og með 1. janúar 2022. Í deild hrossbænda verður unnið að okkar málefnum með sama hætti og áður enda hefur deild hrossabænda sínar samþykktir og markmið, þar sem allar helstu áherslur félagsins eru tilgreindar. Til þess að verða félagi í deild hrossabænda þarf fólk að skrá sig í Bændasamtökin, í deild hrossabænda og auðsóttar frekari skýringar hjá Bændasamtökunum um það ferli. Við hestafólk urðum fyrir talsverðu áfalli núna í ár vegna umfjöllunar og umræðu um blóðtöku úr fylfullum hryssum og hafa síðustu mánuðir verið okkur öllum erfiðir og umræða mikil. Það var því góð lausn til að faglega og vel verði farið ofaní saumanna á þessu starfi að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra skipaði starfshóp sem falið verður að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kringum hana auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis. Á framhalds aðalfundi félagsins var í áliktun skorað á ráðherra að jafnframt verði skoðaðir heildarhagsmunir hrossaræktar og hestatengdrar starfsemi við ákvörðun um framtíð blóðtöku úr hryssum. Í greinargerð með ályktuninni kemur fram að fundurinn hafi áhyggjur af því að þessi starfsemi eigi ekki samleið með því umfangsmikla starfi sem tengist íslenska hestinum og geti skaðað ásýnd hans og orðspor. En það er ánægjulegt að geta fagnað því að árið í ár er algert metár í útflutningi á hrossum en alls fara 3.341 hross út á árinu og er það þá annað árið í röð sem útflutningur eykst verulega. Hvað veldur þessari auknu eftirspurn er sjálfsagt samspil ýmissa þátta en við sem stöndum að markaðsverkefninu Horses of Iceland erum þess fullviss að sú markaðsvinna sem unnin hefur verið í því starfi undanfarin ár sé að skila sér með þessum hætti sem og áhuga á Íslandi og þurfum við að halda þeirri vinnu ótrauð áfram. Mikil uppbygging hefur orðið í kringum hestahald á síðustu árum og mikill metnaður hjá hestafólki að standa að hestamennskunni af mikill prýði. Það má meðal annars sjá á þeim vaxandi fjölda fólks sem hefur sótt sér menntun í hestafræðum auk þess stóra hóps sem starfar við hestatengda starfsemi. Framhaldið verður því spennandi og okkar helstu sóknarfæri að vanda til verka en okkar besta auglýsing er og verður góður aðbúnaður okkar hrossa og ánægðir viðskiptavinir. Um leið og ég þakka félagsfólki mínu og hestafólki öllu fyrir samstarfið á árinu sem er að líða, óska ég ykkur öllum gleðilegs nýs árs og hvet ég ykkur til að huga vel að hrossunum ykkar hvort sem er á húsi eða í haga áður en flugeldaæðið rennur á landsmenn. Með hátíðarkveðju og óskum um gott og farsælt komandi ár. f.h. Félags hrossabænda Sveinn Steinarsson, formaður

Ályktun frá aðalfundi Félags Hrossabænda

Aðalfundur Félags hrossabænda, haldinn 11. desember 2021, fagnar ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um skipan starfshóps sem fjalla á um starfsemi er varðar blóðtöku úr fylfullum hryssum, regluverkið í kring um hana og eftirlit. Fundurinn vill beina því til ráðherra að jafnframt verði skoðaðir heildarhagsmunir hrossaræktar og hestatengdrar starfsemi við ákvörðun um framtíð blóðtöku úr hryssum.

Yfirlýsing Félags Hrossabænda

Félags Hrossabænda harmar og fordæmir þau vinnubrögð sem viðhöfð voru og sjást á myndbandi við blóðtöku úr hryssum. Forsvarsmenn félagsins hafa ávallt bent á að velferð hryssna og folalda í blóðhryssnabúsakp þurfi að vera í fyrirrúmi. Það eru því áfall að verða vitni að þeirri meðferð sem sést í myndbandinu. Hvorki aðbúnaður, umgjörð og hvað þá heldur sú illa meðferð sem hryssurnar eru beittar er á nokkurn hátt réttlætanleg. Það er skýlaus krafa Félags hrossabænda að rannsakað verði það sem fram kemur í myndbandinu og upplýst af hálfu Mast hvernig eftirliti með þessari starfsemi sé og hafi verið háttað og hver beri ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er. Stjórn Félag hrossabænda.

Fundargerð aðalfundar 2021

Aðalfundur 13 nóv

Boðað hefur verið til aðalfundar Félags hrossabænda í Guðmundarstofu (félagsheimili Fáks Víðidal) laugardaginn 13. nóvember og hefst fundurinn kl 10:30. Hlökkum til að hittast og fara yfir málin. Bestu kveðjur Stjórnin

Fundur um félagsmál hrossabænda Í Rangárhöllinni

Fundur verður í Rangárhöllinni í kvöld kl 20:00 (25.okt) . Á fundinum, sem er öllum opinn og haldinn af Hrossaræktarsamtökum Suðurlands verður farið yfir þær breytingar sem orðnar eru á félagskerfi Bændasamtaka Íslands og hvaða áhrif þær hafa á Félag hrossabænda. Mikilvægt er að félagsmenn og aðrir hesteigendur kynni sér þær breytingar sem framundan eru. Frummælendur á fundinum eru Sveinn Steinarsson, formaður Félags hrossabænda og Unnsteinn Snorri Snorrason, starfsmaður Bændasamtaka Íslands.

Málefni hrossaræktarinnar og hestamanna - Fundarferð um landið

Almennir fundir um málefni hrossræktarinnar og félagsstarfsins verða haldnir um landið í október, þegar Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Elsa Albertsdóttir ræktunarleiðtogi íslenska hestsins verða á ferðinni.

Landsýning kynbótahrossa á Fjórðungsmóti Vesturlands

Á Fjórðungsmóti Vesturlands í Borgarnesi daganna 7-11 júlí hefur verið ákveðið að hluti dagskrár verði Landsýning á kynbótahrossum. Eigendum tíu efstu hrossa í öllum flokkum hryssna og stóðhesta eftir dóma vorsins gefst þar kostur á að koma og kynna sína gripi. Viðburðurinn verður vel kynntur, sýningin tekin upp og steymt þannig að hægt verður að fylgjast með Landssýningu kynbótahrossa um víða veröld. f.h Félags hrossabænda og Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins Sveinn Steinarsson og Elsa Albertsdóttir.

Nokkur atriði varðandi kynbótasýningar 2021

Nú fer að líða að því að kynbótasýningar ársins fari að hefjast og er stefnt á 11 sýningar víðs vegar um landið. Fyrirkomulagið er með hefðbundnu sniði eins og undanfarin ár þar sem stefnan hefur verið tekin á að draga úr fjölda sýningarstaða til að reyna að stemma stigu við kostnaði við sýningar auk þess að með því móti er enn betur hægt að svara kröfum um frekari stöðlun sýningarstaða.

Afkvæmaverðlaun stóðhesta 2020

Hér má sjá myndband þar sem Elsa Albertsdóttir ræktunarleiðtogi íslenska hestsins kynnir þá stóðhesta sem hlutu afkvæmaverðlaun á árinu 2020. Alls voru þetta 6 hestar sem hlutu fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og 5 hestar sem hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Efstu hestar í báðum flokkum, þeir Skaginn frá Skipaskaga og Skýr frá Skálakoti, hlutu Orrabikarinn og Sleipnisbikarinn á Landssýningu kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum árið 2020.