Fundir um málefni hrossaræktarinnar hefjast fljótlega en Sveinn Steinarsson formaður Félags hrossabænda og Þorvaldur Kristjánsson hrossaræktarráðunautur verða á ferðinni um landið og kynna það sem er efst á baugi. Helstu málefni sem tekin verða fyrir á fundunum eru m.a. eftirfarandi:
Eins og sjá má verður margt áhugavert tekið til umræðu.
Fundirnir verða haldnir um allt land en þeir verða haldnir á eftirfarandi stöðum - ATH breyttan fundardag í Borgarnesi:
19. febrúar, miðvikudagur - Hafnarfjörður – Reiðhöll Sörla kl. 20:00.
20. febrúar, fimmtudagur - Borgarnes – félagsheimili Borgfirðings kl. 20:30.
25. febrúar, þriðjudagur - Höfn í Hornafirði - Fornustekkar kl. 20:00
26. febrúar, miðvikudagur - Austurland – Iðavellir kl. 20:00
2. mars, mánudagur - Suðurland – reiðhöllin á Hellu kl. 20:00.
5. mars, fimmtudagur - Ljósvetningabúð kl. 20:00.
6. mars, föstudagur - Skagafjörður - Tjarnarbær kl. 20:00.
10. mars, þriðjudagur - Vestur-Húnavatnssýsla - Gauksmýri kl. 20:00.
Hvetjum hestamenn og hrossaræktendur til að fjölmenna á fundina og nýta tækifærið til að kynna sér verkefnin og leggja sitt til málanna.